2025 - 2024 - 2023 - 2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
28.6.2007

70 sm úr Veiðivötnum!

Seinnipartinn í dag veiddist draumafiskur í Veiðivötnum á Landmannaafrétti. Það var Egill Ingibergsson sem datt í lukkupottinn og var algjörlega í skýjunum. "Þetta var Magic moment! Það var stafalogn og ég í rauða gýgnum á leiðinni upp að Litla sjó," sagði Egill við heimildarmann Flugufrétta nú í kvöld.

Hann bætti því við að töfrastundin hafi kallað fram brjálaða töku stórfiska. Egill náði þremur fiskum, þar á meðal var einn 70 sm eða um 10 pund, og tveir aðrir 5-6 punda. Allir tóku þeir lítinn hvítan Nobbler, hnýttan á öngul nr. 10. ?Slagurinn við þann stærsta var rosalegur. Hann tók tvær rokur langt niður á undirlínu, ekki svona í rykkjum með tilhlaupi, heldur fast og ákveðið í einum rykk og það rauk úr hjólinu!? sagði Egill þegar hann lýsti viðureigninni við urriðann góða.

Nú er um vika síðan veiðin hófst í Veiðivötnum og hún hefur verið upp og niður, eins og gengur, allt eftir veðri og aðstæðum. Egill stundi því upp að hann væri búinn að veiða ágætlega á flugu en kvaddi síðan til að fá næði til að jafna sig og dást að urriðanum stóra. "Magic moment" eru orð að sönnu! Við lofum mynd af fiskinum góða í Flugufréttum í næstu viku.

Meðfylgjandi mynd er af Agli Ingibergssyni með snotran 48 sm urriða úr Litlá í Kelduhverfi. Skömmu áður en myndin var tekin sleppti hann 69 sm urriða en því miður var engin myndavél nálæg þá. Seinna sama haust náði hann 69 sm trölli úr Laxá í Mývatnssveit sem vigtaði 10,5 pund. Egill er stórurriðaveiðimaður! Myndina tók veiðifélagi Egils, Þórarinn Blöndal.

21.12.2007

Seldi sjálfan sig

22.11.2007

Sími rænir fiski

8.8.2007

Ekkert í Kaldá

14.7.2007

Loksins lax

4.7.2007

Bleikjudans

26.6.2007

Kalt á Skaga

23.6.2007

Glær Laxá

17.6.2007

Lítil laxveiði

7.5.2007

Breiðdalsá