Sigurveig Runólfsdóttir gerði ,,,stormandi lukku" í hópi veiðifélaga að sögn eiginmanns þegar hún landaði vænum laxi á nettar silungagræjur í Norðurá. Fjarkinn glímdi við laxinn í meira en klukkustund. Þau voru að veiðum á ,,Fjallinu" og erfiðar aðstæður þar sem laxar virtust tyggir. Á vef svfr.is segir í fréttapistli: ,,Kl. 11.30 um morguninn setti hún út míkró keilu, rauðan Frances nr. 16, grýtti út í Þvottahyl og setti í lax. Við hann togaðist hún á í einar 65 mínútur......jaaaááá 65 mínútur og að lokum gafst laxinn upp. Það var hængur...
.... hvað annað, 92 cm að lengd og eins og áður var sagt frá þá tók hann rauðan Frances, míkró keilu á krók nr.16, taumurinn var 8 pund og flugustöngin..... já prikið var ekki af stærri gerðinni!!!!! Loop, Greyline, 9 fet fyrir línu #4.
Á þessum 65 mínútum hamaðist fiskurinn, stökk og allt þar á milli og lengi þumbaðist hann við úti í miðjum streng. Að lokum ....1 klst. og 5 mínútum síðar var drekanum landað við mikinn fögnuð áhorfenda, sem að hafði drifið á meðan á bardaganum stóð."