
Sporðaköst í Laxá fyrr í dag.
Um eða yfir 100 urriðar veiddust á silungasvæðunum ofan virkjunar í Laxá í dag og er eftir því tekið hversu vænir þeir eru. Flestir fiskanna sem gefa sig eru yfir 50 sm og sá stærsti sem veiddist opnunardaginn var 64 sm. Sá kom úr Hólkotsflóa á Hamri og var veiðimaðurinn Guðmundur Stefán Maríasson (mynd að ofan). Áætla má að um 80% aflans hafi komið úr Mývatnssveit en þess ber að geta að þar er veitt á 14 stangir og oft tveir menn um hverja stöng á meðan veitt var á 8 stangir í Laxárdal og þar eru flestir einir á stöng. Ákaflega napurt var á þessum slóðum og spáð er heldur kólnandi veðri.
Áin mældist 5 gráður í Dalnum og lofthiti á bilinu 2-5 gráður. Í nótt er síðan reiknað með næturfrosti og á morgun gæti gengið á með lítilsháttar éljum í 1-2 gráðu hita. Morgundagurinn verður því líka býsna strembinn fyrir veiðimenn.
Þegar svo kalt er hreyfir fiskurinn sig lítið til að spara orku og ekki hafa flugur.is fregnað að einn einasti fiskur hafi tekið straumflugur, allt hefur komið á púpur og virðist mestu skipta að veiðimenn komi þeim beint fyrir fiskinn svo hann ómaki sig við að taka þær. Þegar hlýnar í veðri og lífríkið vaknar úr kuldadvala, má búast við algjörri veislu í urriðaveiðinni á þessum slóðum. Álit manna er að áin þurfi að vera að lágmarki 7-9 gráður svo fiskurinn fari að hreyfa sig í ætisleit.

Guðmundur Stefán Maríasson með 64 sm fiskinn sem tók Beygluna eftir Gylfa heitinn Kristjánsson.

Þóroddur Sveinsson með 55 sm fisk úr Sprengjuflóa núna seinnipartinn.