
Þrátt fyrir að það sé búið að vera kaldranalegt í Fnjóskárdal undanfarið þá er laxinn mættur. Það voru stjórnarmenn í Flúðum sem hófu veiðitímabilið og var veitt á svæði 1 sem er neðsta svæðið í ánni. Alls komu 4 laxar á land sem voru um 10-11 pund. Fleiri tökur fengust og einn stórlax tapaðist eftir að hafa rétt úr krókana með miklum látum. Sagði veiðimaðurinn að fiskurinn sem hann landaði síðar hefði kannski slagað í það að vera hálfdrættingur á við þann er hann missti.
Það er mjög fallegt vatn í ánni þessa dagana þar sem það hefur verið kalt og víst að fiskur gengur auðveldlega upp laxastigann, enda sáust tvær boltableikjur í miðjum stiganum. Það er þó ansi hætt við því að vorleysingarnar eigi eftir að koma þegar hlýnar verulega eða rignir mikið.
Eftir hamfarirnar í vetur hafa orðið breytingar á nokkrum stöðum þar sem bæði möl og björg hafa fæst til og er til að mynda rennan í Kolbeinspolli orðin töluvert breytt sem og mikið hefur hrunið ofan í Bjarghornið. Hvort þetta hefur áhrif á veiðina í þessum stöðum á eftir að koma í ljós.
Lítið er eftir af lausum veiðileyfum í Fnjóská í sumar en þó stakar vaktir á efri svæðunum snemma og svo 2ja daga stangir á haustdögum.


Stjórnarmennirnir Guðmundur og Sigþór með fallega laxa.