Fyrsti lax sumarsins veiddist kl 7.25 í Blöndu. Páll Magnússon landaði þar 12 punda hrygnu á maðk í Holunni. Kl 9.30 voru komnir 2 á land í viðbót: Páll með annan úr Holunni og Egill Guðjohnssen með einn úr Damminum líka á maðk. Fyrsti flugulax sumarsins kom hins vegar land á Stokkhylsbroti í Norðurá kl. 9.15.
Þar var á ferð Ásmundur Helgason með fluguna "Glaða tvíburann". Þetta reyndist vera 84 sm spegilgljándi hrygna. Bjarni Júlíusson formaður SVFR byrjaði að venju á Brotinu en varð ekki var.
.jpg)
Bjarni formaður spáir í hvaða flugu skuli næst nota.
.jpg)
Ásmundur Helgason búinn að setja í hann.
.jpg)
Ragnheiður Thorsteinsson býr sig undir að sporðtaka fyrir Ása.
.jpg)
Glaði tvíburinn.
.jpg)
Og svo segja þeir að veiðin sé karlasport!