2024 - 2023 - 2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
12.4.2008

Uppstoppað listaverk

Laugardaginn 12. apríl, opnaði Haraldur Ólafsson allsérstæða listsýningu í Jónas Viðar Gallery í Listagilinu á Akureyri.

Haraldur er hamskeri og hefur unnið til fjölda verðlauna á því sviði út um allan heim. Hann sýnir nú eitt af sínum nýjustu verkum.

Laugardaginn 12. apríl, opnaði Haraldur Ólafsson allsérstæða listsýningu í Jónas Viðar Gallery í Listagilinu á Akureyri. Haraldur er hamskeri og hefur unnið til fjölda verðlauna á því sviði út um allan heim. Hann sýnir nú eitt af sínum nýjustu verkum.

Verkið er uppstoppaður lax sem ættaður er úr Laxá í Aðaldal og var gerður fyrir heimsmeistaramót í hamskurði sem haldið var í Salzurg í Austurríki í febrúar sl. Haraldur keppti í meistaraflokki  og fékk fyrstu einkunn eða 90 stig af 100 mögulegum.

Ef grannt er skoðað má sjá fiska sem eru tálgaðir út úr rekaviðarrót sem er umgjörð utan um verkið og gert í þeim tilgangi til að skora stig fyrir listræna útfærslu á verkinu.

Haraldur Ólafsson er fæddur á Akureyri 1962. Hann er menntaður sem tækniteiknari og starfaði sem slíkur um tíu ára skeið hjá Pósti og síma. Hann byrjaði fljótlega upp úr 1990 að stoppa upp fugla og var það aðeins áhugamál til að byrja með. Haraldur vann í nokkur ár sem fangavörður við fangelsið á Akureyri en árið 1997 tók hann þá ákvörðun að helga sig eingöngu list sinni og hefur hann starfað sem hamskeri (uppstoppari) síðan.

Frá árinu 2000 hefur Haraldur  tekið þátt í 9 stórum sýningum og keppni í þeirri listgrein sem hefur verið kölluð hamskurður og sérhæft sig í upptoppun fiska. Má segja að sú grein tengist listmálun allnokkuð þar sem litir, málun og litgreining fara saman.

Frétt af www.akureyri.is.

19.12.2008

Fiskar í snjónum

12.12.2008

Sukk og svínarí

21.11.2008

Laxárfréttir

14.11.2008

Laxar og ber

13.10.2008

Ókeypis veiði!

3.10.2008

Jómfrúarvatn

6.9.2008

Stórlaxatími

30.7.2008

Metin falla

28.7.2008

Húfur sem hlægja

23.7.2008

Fleiri stórir!

23.7.2008

Maríualax!

18.7.2008

Stórlaxadagar

12.7.2008

Laxveiði góð

10.7.2008

Grenlækur gefur

1.7.2008

Nóg sandsíli?

27.6.2008

SVFR fær Laxá

26.6.2008

Costa Del Kjós

24.6.2008

Það byrjar vel

12.6.2008

Útför KK

6.6.2008

Fallnir félagar

5.6.2008

Laxar á land

28.5.2008

Opnunin í Laxá

16.5.2008

120 fiska maður!

3.5.2008

Lax úr Blöndu

9.4.2008

Tregt í Sogi

8.4.2008

Á veiðistað

18.3.2008

Hækkun í Laxá

14.2.2008

Heimskautableikjan

10.2.2008

Tígrisfiskaveiði

25.1.2008

Veiðileiðsögn