25 ára afmæli Flugufrétta
Við leyfum okkur að vera sjálfhverf í Flugufréttum dagsins, því í dag höldum við upp á 25 ára afmæli útgáfunnar.
Stefán Jón Hafstein segir okkur frá upphafinu, við birtum nokkur heillaskeyti, pælum í laxveiðinni og segjum frá góðum samningi sem Veiðikortið var að gera. Myndin með þessari frétt af Stefáni Jóni á þriðja starfsári Flugufrétta.
Til hamingju með Flugufréttir.