Við fengum nokkra veiðimenn til að segja frá hápunktum veiðisumarsins 2021 og sögurnar eru birtar í Flugufréttum vikunnar. Sagt er frá ótrúlegri þolinmæði sem ber ávöxt, músinni í boxinu og alls konar fleiru. Farið er víða, m.a. í Kráká, Norðurá, Ölfusvatnsá, Þverá, Langá, Varmá, Baulárvallavatn, Laxá í Mývatnssveit og Elliðaárnar. Á myndinni er einn af sögumönnum vikunnar, Guðný Helga Herbertsdóttir, með laglegan lax.