2024 - 2023 - 2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
21.7.2020

Sjóbirtingurinn mættur í Varmá

 
Bjartur með flottan birting úr Varmá. Mynd SVFR

Birtingurinn er byrjaður að ganga í torfum upp Varmána í Hveragerði. Þeir sem fylgjast með Veiðisnappinu sáu nánar stöðuna þar núna á sunnudaginn. Þar er fiskur kominn upp fyrir þjóðveg og bunkar af fiski alla leið niður á Bakka. Þar er hægt að komast í skemmtilega veiði á næstu dögum enda nóg laust. 
Á heimasíðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur segir svo frá degi sem Bjartur og veiðifélagi hans áttu á dögunum: 

Sjóbirtingurinn er mættur í Varmá og í töluverðu magni!

Bjartur Ari var við veiðar í gær með vini sínum Guðmundi Kára og voru þeir varir við mikið magn af fiski á flestum svæðum. Sjóbirtingarnir voru eins og tundurskeyti þegar þeir komu á fullri ferð upp ánna, þeir voru varir við göngurnar á bökkum en einnig sáu þeir fiska ganga fyrir ofan þjóðveg.

Þeir félagar fengu fimm sjóbirtinga og misstu eitthvað svipað, einn af þeim misstu voru víst algjör skepna sem var aldrei undir 80cm! Heitustu staðirnir voru Bakkar, Gamla Stífla, Teljarinn og síðan breiðan fyrir neðan rörið neðan við Reykjafoss. Flestir fiskarnir tóku litlar straumflugur en sá stærsti tók svartan Dýrbít og mældist birtingurinn 65cm og alveg hnöttóttur!

Bjartur segir að hann hafi aldrei séð jafn mikið af fiski í ánni og núna, göngurnar sem komu upp voru rosalegar og hylurinn bókstaflega lyftist þegar þær straujuðu í gegn. Það er án efa kominn fiskur upp fyrir Reykjafoss og er það svæði talið það skemmtilegasta í ánni. Við viljum benda þeim á sem eru að fara í Varmá að loka öllum hliðum á eftir sér.

12.11.2020

Stelpur veiða laxa

16.10.2020

Tímavélin

20.8.2020

Klinkhammer

17.8.2020

Helgarfréttir

15.8.2020

Tungsten örtúbur

10.8.2020

Fiskifréttir

4.8.2020

Viðtal við KK

24.7.2020

Laxveiði vikan

22.7.2020

Flugan Friggi

18.7.2020

Flugufréttir

26.6.2020

Veiðimynd dagsins

23.6.2020

Mundu veltikastið

21.6.2020

Flottar opnanir

17.6.2020

Veitt og sleppt

16.6.2020

Laxa opnanir

10.6.2020

Laxafréttir

19.5.2020

Sagan um Krókinn

6.5.2020

Dagur í Kjós

3.5.2020

Nýja Sjáland

28.4.2020

Norðan fréttir

24.3.2020

Vika í veiði