2024 - 2023 - 2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
16.4.2020

Sandá til SVFR - stórlaxaá sem sveipuð er dulúð

 Þau stórtíðindi bárust á vefinn í gær að frá sumrinu 2021 muni SVFR vera með Sandá í Þistilfirði í sinni umsjón. Áin hefur verið lengi í hópi aðila sem hafa sjálfir skipt dögunum á milli sín og þetta er því virkilega spennandi viðbót við flóru stangaveiðifélagsins. Við látum hérna fylgja með tilkynningu af facebooksíðu félagsins. 

HIN KYNGIMAGNAÐA SANDÁ Í ÞISTILFIRÐI TIL SVFR - STÓRKOSTLEGT, SEGIR FORMAÐUR FÉLAGSINS.

SVFR og Veiðifélag Sandár hafa undirritað samning um langtímasamstarf, frá og með sumrinu 2021. Það eru söguleg tíðindi, því allt frá árinu 1964 hefur áin verið í leigu hjá lokuðum hópi einstaklinga ? veiðifélaginu Þistlum - sem hafa skipt veiðitímabilinu á milli sín. Áin hefur fyrir vikið verið sveipuð mikilli dulúð og mun færri komist að henni en hafa viljað.

"Það er í einu orði sagt stórkostlegt fyrir SVFR að geta boðið sínum félagsmönnum leyfi í þessari perlu Þistilfjarðar, sem er í hópi albestu laxveiðiáa landsins. Hún eykur fjölbreytnina í ársvæðaflóru SVFR, þar sem áin er í sjálfsmennsku og fellur fullkomnlega að þörfum margra félagsmanna. Þá er Sandá sannkölluð stórlaxaá og er ánægjuefni að bæta slíku ársvæði við þá flóru sem við höfum upp á að bjóða. Það er stórkostleg upplifun að veiða Sandá. Hún er margslungin og fjölbreytt, því bæði er veitt í tilkomumiklum gljúfrum, í straumþungum strengjum, guðdómlegum breiðum og löngum, djúpum hyljum. Sandá býður einfaldlega upp á allt." segir Jón Þór Ólason, formaður SVFR.

Veiðisvæði Sandár er um 14 km langt frá sjávarósi og allt upp að Sandárfossi. Veitt er á 3 - 4 stangir og eru merktir veiðistaðir um 40 talsins.

Vegna leyndarinnar sem hvílt hefur yfir Sandá er lítið til að mynd- og kynningarefni, en SVFR mun bæta úr því og kynna þessa kyngimögnuðu á vandlega áður en sala veiðileyfa hefst síðar á árinu.

"Við erum stolt af því að landeigendur við Sandá hafi valið að ganga til samninga við SVFR þegar ákvörðun lá fyrir um að endurnýja ekki samning við núverandi leigutaka. Við munum leggja okkur öll fram við að vernda og hlúa að þessari miklu veiðiperlu og hlökkum mjög til samstarfsins við heimamenn um frekari uppbyggingu ársvæðisins. Þetta eru mikil tímamót enda eru það margir sem eiga þann draum að egna fyrir stórlaxinn í Sandá," segir Jón Þór.

12.11.2020

Stelpur veiða laxa

16.10.2020

Tímavélin

20.8.2020

Klinkhammer

17.8.2020

Helgarfréttir

15.8.2020

Tungsten örtúbur

10.8.2020

Fiskifréttir

4.8.2020

Viðtal við KK

24.7.2020

Laxveiði vikan

22.7.2020

Flugan Friggi

18.7.2020

Flugufréttir

26.6.2020

Veiðimynd dagsins

23.6.2020

Mundu veltikastið

21.6.2020

Flottar opnanir

17.6.2020

Veitt og sleppt

16.6.2020

Laxa opnanir

10.6.2020

Laxafréttir

19.5.2020

Sagan um Krókinn

6.5.2020

Dagur í Kjós

3.5.2020

Nýja Sjáland

28.4.2020

Norðan fréttir

24.3.2020

Vika í veiði