"FUSS, félag ungra í skot- og stangveiði, var nýlega stofnað. Tilgangur félagsins er að koma saman ungu fólki sem hefur áhuga á skot- og stangveiði. Félagið er fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Öflugt félagsstarf verður allt árið um kring. Stofnendur félagsins eru Þorsteinn Stefánsson, Helga Kristín Tryggvadóttir, Jón Hugo Bender og Gissur Karl Vilhjálmsson.
Markmið félagsins er að fræða og vekja vitund ungs fólks á umhverfi veiðinnar. Dæmi um viðburði sem haldnir verða eru:
kastnámskeið, fluguhnýtingarnámskeið, skotæfingar, hátíðir og veiðiferðir.
Opnunarviðburður félagsins verður haldinn á Sólon fimmtudaginn 27. febrúar og byrjar klukkan 20:00. Við viljum endilega hvetja allt ungt áhugafólk um veiði til að mæta á opnununar viðburðinn og kynna sér félagið. Heimasíða félagsins opnar sama kvöld en hægt er að fylgjast með á www.fuss.is "