2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
29.3.2015

Nýir eigendur að flugur.is

Eigendaskipti hafa orðið að flugum.is.  Stefán Jón Hafstein hverfur til annarra verka eftir 15 ára frumkvöðlastarf og nýr hópur eignast vefinn.  Flugufréttir ehf. tekur nú við keflinu, en eigendur þess félags eru Magnús Halldórsson og Andri Valur Ívarsson, sem eiga helmingshlut, og hjónin Dögg Hjaltalín og Ólafur Finnbogason, sem eiga hinn helminginn.

Stefán Jón segir í kveðjuorðum:  ,,Ég stofnaði þessa þjónustu fyrir nær 15 árum og hef haft ómælda ánægju af því að vinna með, skrifa fyrir og hlusta eftir röddum fluguveiðimanna á Íslandi.  Þetta hefur verið einstaklega ánægjulegur tími og útgáfan gengið vel frá fyrsta degi.

Ritstjórar Flugufrétta, þeir Ragnar Hólm og Þorsteinn G. Gunnarsson verða áfram við stjórnvöl Flugfrétta og sjálfur  mun ég auðvitað leggja lið eftir því sem mér tekst að veiða fiska með öðru.  Mér líst vel á að fá frískan hóp til að taka við vefnum og óska þeim jafn mikillar ánægju og ég hef haft af.  Ég efast ekki um að þau verða mjög ötul við að efla vefinn og koma á næsta stig á þróunarbrautinni."

<p>&#160;</p>

27.11.2015

Svarti Pétur

3.4.2015

Til hamingju!

20.3.2015

Sólmyrkvinn