
Skýrsla árnefndar SVFR fyrir urriðasvæðin í Laxá sumarið 2014 hefur enn ekki verið birt en Flugufréttir hafa hana undir höndum og tæpa á því helsta í blaði vikunnar. Þar kemur ýmislegt merkilegt fram um aflabrögðin síðasta sumar, leirlosið og stangarnýtingu svo eitthvað sé nefnt. Við fáum einnig góða kynningu á Eldvatni í Meðallandi og þá helst Nónskeri frá Haraldi Árna Haraldssyni og Nils Folmer Jorgensen sýnir okkur þrjár nýjar flugur sem munu hrella margan stórlaxinn næsta sumar. Þetta og margt fleira í Flugufréttum vikunnar.