
Það líður að lokum laxavertíðar. Í Flugufréttum vikunnar tökum við rúntinn um nokkrar af bestu laxveiðiám Norðurlands með Autumn Hooker og Metallicu í farteskinu. Þar koma við sögu Laxá í Aðaldal, Hrútafjarðará, Víðidalsá og Vatnsdalsá en við kíkjum einnig á Hafralónsá og Húseyjarkvísl þar sem nýtt laxveiðimet hefur verið sett. Rennt er fyrir sjóbirting í Eyjafjarðará, hnúðlaxi landað í lítilli sjóbleikjuá og Sveinn Þór sýnir okkur nýjar flugur sem vöktu mikla athygli á stórri fluguveiðisýningu í Oregon um miðjan ágúst. Alls konar í Flugufréttum vikunnar!
Og meðfylgjandi "Veiðimynd vikunnar" er af Krauna sjálfum með 102ja sm hæng sem vóg hvorki meira né minna en 12,6 kg og kappinn landaði á Knútsstaðatúni á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal í gærkvöldi.