Fréttaritari flugur.is var við 3 mann við veiðar í Reykjadalsá í S-Þing. sl. helgi og var veiðin frekar döpur. Dálítið er af bleikju og urriða og sá stærsti sem náðist var um 2 pund. Ekki bólaði á laxi og ljóst að verulega er farið að dofna yfir og hvítt komið í hæstu tinda norðanlands enda einungis 2-4 gráður þegar byrjað var að veiða þó menn færu heldur seint af stað.
Vetrarklæðnaður og kuldaskór við veiðihúsið við Bollastaði.
Áin er feyki skemmtileg að öðru leyti og veiðihúsið alveg til fyrirmyndar. Samkvæmt veiðibókinni hefur dofnaði verulega yfir laxveiðinni í seinni hluta ágúst en silungaveiðin hefur einnig verið ágæt í sumar. Stærstu fiskarnir sem komið hafa á land í sumar eru 93 sm hængur og hrygna og það var sami veiðimaðurinn sem setti í báða laxana.