Eins og margir vita eru uppi hugmyndir um að virkja Ölfusá í tengslum við gerð nýs brúarstæðis. Gengur sú hugmynd undir nafninu Selfossvirkjun. Samkvæmt upplýsingum sem fram komu í Morgunblaðinu í gær (11. september) er gert ráð fyrir göngu laxfiska við hönnun virkjunarinnar, bæði seiðum sem ganga til sjávar og eins laxfiska sem ganga upp ánna.
Nýja brúin mynd koma nokkru fyrir ofan núverandi brú og sneiða framhjá byggðinni. Mynd fengin að láni af www.mbl.is.
Ítarlegri skýringar vantar þó hvernig þessu skuli háttað en gott er til þess að hugsa að strax á teikniborðinu sé tekið tillit til þessara mikilvægu þátta. Ölfusá er vatnsmesta á landsins og allur lax sem fer upp í Sogið og Hvítá fer þar um. Samkvæmt upplýsingum sem birtar voru á netsíðu Morgunblaðsins (www.mbl.is) er hugmyndin sú að byggja í einu mannvirki stíflugarð með flóðgáttum og brú.