"Ég var að veiða á stað nr. 16 með kasstöng sem ég keypti í fyrra, kasta út í og var ekki alveg búinn að stilla bremsuna rétt, þegar þessi líka "neglingin" kom á spóninn, risasjóbirtingur tókst á loft og lét öllum illum látum, allt í einu heyrði ég brothljóð, ekkert átak lengur og ég sá mér til mikillar skelfingar að ég stóð á bakkanum með skaftið af stönginni í höndunum ásamt hjólinu,...
Jens með birtingur úr Fossálum, mynd fengin að láni af vef SVFK.
...þegar ég áttaði mig á hvað gerst hafði reyndi ég í atgangnum og örvæntingu minni að hala hann inn á höndum en varð að láta í minni pokann, ég sat því eftir á bakkanum í losti með brotna stöng og sárar hendur eftir girnið", sagði Jens Kristinsson og var mikið niðri fyrir en hann var staddur í Fossálunum þegar SVFK menn náðu viðtalið við hann. Ítarlegri frásögn má finna á vef Keflvíkinganna á slóðinni http://www.svfk.is/.