Skógá hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið vegna hruns í veiði lax og bleikju. Að jafnaði hafa veiðst um 1000 laxar á sumri í Skógá og Ásgeir Ásmundsson hefur stundað fiskrækt þar undanfarinn áratug. Ásgeir segir í viðtali við RUV þann 19. ágúst sl. að meira og minna af allri öskunni sem var hreinsuð undir Eyjafjöllum hafi verið sturtað við Skógá.
Ásgeir við Skógá, mynd fengin að láni af www.ruv.is.
Það er auðvitað gott að hreinsunarstarf skuli hafa átt sér stað og mikilvægt að reyna að bjarga verðmætum en ef satt er að viðkomandi aðilar hefi notað Skógá sem ruslakistu er það sorgleg handvömm. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því hversu miklum tíma og verðmætum hefur verið varið í það að byggja upp starfsemi eins og þá sem stunduð er við Skógá. Veiðimálastofnun hefur rannsakað áhrif gjóskufalls á ár undir Eyjafjöllum og má nálgast upplýsingar á vef Veiðimálastofnunar hér: http://veidimal.is.