Samkvæmt tölum af vef Landssambands Veiðifélaga (www.angling.is) hefur árið 2008 aftur tekið forystuna sem aflamesta árið. Þann 18. ágúst voru komnir á land 31.384 laxar sem er um 350 löxum minna en á sama tíma 2008. Er þar aðallega um að ræða að Rangárnar eru með heldur minni afla nú en þá.
Þrjár ár eru komnar yfir 3000 laxa múrinn og eru þær mjög jafnar síðan koma tvær með á þriðja þúsundið:
Ytri og Eystri - 3120 laxa
Þverá/Kjarrá - 3107
Blanda - 2739
Miðfjarðará - 2125
Hæpið er þó að Blanda haldi sínu sæti lengi því hún er nú komin í yfirfall og veiði dregist mikið saman.
Hér má sjá töflu yfir veiði á árinu ásamt samanburðartölum frá árinu 2009.