Stefán Páll hjá Lax-á (www.lax-a.is) segir í viðtali við flugur.is að veiðin hafi gengið mjög vel í sumar heilt á litið. Sérstaklega hafi verið öflug laxagengd á norðvesturlandi og Vestfjörðum. Auðvitað séu sumar ár viðkvæmari fyrir þurrkum en aðrar, en sem dæmi megi nefna að árnar í Djúpinu eru að ganga mjög vel og nóg sé af fiski í Víðidalsá, þó vanti aðeins á vatnið eru stórir fiskar á ferð.
Laugardalsá, mynd fengin að láni af Agninu(www.agn.is).
Stefán Páll nefnir sérstaklega að Blanda skili toppári þó yfirfall hafi komið fyrr en áætlanir Landsvirkjunar gerðu ráð fyrir og það sé sorglegt sérstaklega þar sem svæði 4 hafi verið að ganga frábærlega. Eitt gott dæmi er
um aðila sem var við veiðar rétt eftir Verzlunarmannahelgina, en hann fékk 30 laxa á eina stöng og þar af tók hann 20 fiska á gáruhnútinn. Einnig fer Svartá fram úr björtustu vonum, er nú þegar komin yfir 400 laxa og gæti vel slegið metið sem er 619 laxar og var sett fyrir 11 árum.
Ásanir hafa gengið mjög og Rangárnar eru á svipuðu róli og 2007-2007, eru nú þegar komnar yfir 3000 laxa hvor og munu líklega enda í 7-8000 fiskum. Einnig hefur Tungufljótið gengið ágætlega og lax kominn á efra svæðið en áin er samt meiri síðsumará. Stefán Páll er því bjartsýnn fyrir haustið og ánægður með veiðina það sem af er sumri.