Þverá fór í 2007 laxa í fyrrakvöld að sögn Andrésar Eyjólfssonar yfirleiðsögumanns. Það er glæsileg veiði, sérstaklega ef borið er saman við sumarið í fyrra en þá fór veiðin yfir 1000 laxa 27.júlí og þótti það ágætt. Andrés segir að laxinn sé heldur vænni en venjulega og að auki mjög mikið af honum eins og veiðitölur sýna: "Það hefur aðeins hægt á í blíðunni en það er nóg af laxi og nú spáir rigningu. Við kvíðum ekki restinni af sumrinu".
Mynd fengin að láni af vefnum Spordur.is.
"Ef það er hola einhverstaðar á eyrinni, þá er lax í henni, það er lax um alla á frá toppi til táar", sagði Andrés og bætti við að þeir væru aðalega að nota minni flugur, svona nr. 12-14, svarta Collie Dog og eitthvað slíkt en eru ekki komnir í pöddurnar ennþá, en það eru að skapast skilyrði fyrir það þessa dagana. En um leið og rigningin kemur þá spretta þeir (laxarnir) undan hverjum steini.
Við óskum aðstandendum Þverár til hamingju með glæsilega veiði og að slá 2000 laxa múrinn með slíkum glæsibrag.