Ágætis veiði er þessa dagana í Kópavogshöfn, en makríll hefur gengið inn í höfnina ungum bæjarbúum til mikillar ánægju. Margir hafa stundað veiðarnar og fengið vænan afla. Þess skal sérstaklega getið að fréttaritari fjallar ekki oft um veiði þar sem flugur koma ekki við sögu en gerir undantekningu í þessu tilviki. Forvitnilegt væri að heyra hvort einhverjir hafa prófað að kasta flugu á þá!
Kátir veiðimenn með makríl úr höfninni.
Kunnáttumenn segja að makríllinn sé bestur nýveiddur, hér er um feitan fisk að ræða og þránar hann við geymslu. Best er víst að velta honum upp úr hveiti blönduðu salti og pipar og steikja upp úr smjöri.
Ágætis afli og flottur matfiskur.
Makríllinn er talinn herramannsmatur víða en ekki er mikil hefð fyrir honum hér á landi, nema sem beitu fyrir urriðann.