Fréttaritari Flugur.is var tvær vaktir á svæði III í Stóru-Laxá í Hreppum og gerði ágætis veiði. Samtals var sett í 8 fiska og 5 komu á land, þar af einn 93 sm. bolti sem gæti vigtast um 16-18 pund. Allir fiskarnir tóku í Heljarþrem, virðist sem laxinn á svæði III stoppi helst þar í litlu vatni.
Gústaf Gústafsson með 93 sm lax úr Heljarþrem.
Allir fiskarnir voru teknir á Sun Ray gárutúbu með grænu í og þríkrækju nr. 12 á stöng nr. 6.
Fréttir um veiði eru einnig að berast af svæði II og IV og því virðist laxinn vera að berast nokkuð jafnt upp þessa dagana en þetta er fyrsta alvöru skotið af svæði III í sumar.