Fréttaritari Flugur.is var að veiðum í Stóru Laxá á svæði 4 í gærmorgun. Veiði gekk ágætlega á þær tvær stangir sem voru nýttar á morgunvaktinni en það vakti athygli að af þeim fjórum löxum sem komu á land voru allir lúsugir og halinn enn á þeim.
7 punda lúsugur lax þreyttur í Klapparhyl, svæði 4.
Það má teljast nokkuð góður sprettur að ferðast alla þessa leið á svo skömmum tíma en það eru um 80 km til sjávar frá veiðistaðnum að sögn staðkunnugra. Forvitnilegt væri að vita hversu marga kílómetra laxinn fer á dag þegar hann gengur svona beint upp.