Veiðivörur er verslun á www.veidivorur.is og ætla að leggja sitt af mörkum til að gera lukkupottinn í áskrifendahappdrætti Flugufrétta enn flottari. Og það má sjá! Græjur og nytsamir hlutir fyrir veiðimenn hvar sem borið er á listanum! Flugnabox, lína, hjól, stöng, hnýtingasett fyrir túbur...það er erfitt að ímynda sér þann veiðimann sem ekki langar í eitthvað af þessu eða allt. Málið er einfalt, skrá sig sem áskrifanda að Flugufréttum og halla sér aftur og bíða eftir að sá stóri taki! Sjá listann í heild hér að neðan og verslunina hér.
Vinningar frá Veiðivörurm.is
Túbuhnýtingarssett verðmæti 19.900 kr. Túbur og efni til að gera yfir 40 túbur, frontur sem passar á flestar gerði væsa og ítarlegur bæklingur um hvernig á að bera sig að. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um túbuhnýtingu á vefnum okkar www.veidivorur.is.
William Joseph Mittistaska. Verðmæti 10.300 kr.
William Joseph Infrarauður hitamælir. Verðmæti 9.970 kr
Wind River þurflugubox verðmæti 6.780 kr.
Taimen fluguhjól stærð að eigin vali. Verðmæti 19.900 kr.
Taimen flutlína að eigin vali og undirlína með. Verðmæti 10.000 kr.
Greentrail útdaraganlet stangarsett. Verðmæti 5.900 kr.
Sjá myndir af öllum þessum vinningum á www.veidivorur.is