Aðalfundur Ármanna verður haldinn miðvikudagskvöldið 11. febrúar 2009 kl. 20 í Árósum, Dugguvogi 13, 104 Reykjavík. Ekki er að vænta stórtíðinda ef marka má dagsskrá sem hér er:
Dagskráin er eftirfarandi:
1. Fundarsetning, skipun fundarstjóra og fundarritara
2. Fundargerð síðasta aðalfundar
3. Skýrsla stjórnar. Umræður
4. Reikningar félagsins. Umræður og afgreiðsla
5. Stjórnarkjör og kjör skoðunarmanna
6. Ákvörðun um árgjald og inntökugjald
7. Önnur mál
8. Kaffi
Á fundinum skal kjósa tvo nýja stjórnarmenn, en úr stjórn ganga Jón Ólafur Skarphéðinsson og Guðmundur Haukur Jónsson.
Tillaga stjórnar um nýja stjórnarmenn er Ágúst Úlfar Sigurðsson og Eiríkur I. Bjarnason.
Tillaga stjórnar um skoðunarmenn er Sigurður Jónsson og Halldór Lárusson og til vara Sigurður Benjamínsson.
Aðrar tillögur um stjórn og skoðunarmenn hafa ekki komið fram.